EndurnýjanlegtInnlentSamsett
þotueldsneyti.

IðunnH2 stefnir að því að breyta endurnýjanlegri raforku, vatni og fönguðu CO₂ í þotueldsneyti. Áætlað er að fyrsta eldsneytið verði tilbúið árið 2029, í vinnslu í 5 km fjarlægð frá Leifsstöð.

// Verkefnið

Íslenska eSAF Vinnslan

IðunnH2 vinnur að uppbyggingu vinnslu í Helguvíkurhöfn þar sem endurnýjanlegu rafmagni er breytt í sjálfbært þotueldsneyti. Þotueldsneytinu verður blandað saman við það eldsneyti sem þegar er notað á vélar og skilar því tafarlausum samdrætti í losun.

Endurnýjanleg raforka Vindur Vatnsafl Jarðhiti Fangað kolefni CO₂ Vatn H₂ Metanól-í-þotueldsneyti (MtJ) Rafgreining275MW Grænt vetni e-metanól eSAF70.000t/ári Blandað á Keflavíkurflugvelli Flug frá Íslandi Klýfur vatn í vetni Frá íslenskri orku Vetni mætir kolefni Samsett þotueldsneyti 5 km frá vinnslu að hliði Núverandi flugvélar, án breytinga
15%

af því þotueldsneyti sem áætlað er að verði notað á Keflavíkurflugvelli árið 2030, framleitt á Íslandi með íslenskri orku.

// Sala

Áætlað er að vinnslan framleiði 70.000 tonn á ári og hafa tvö flugfélög þegar lýst yfir vilja til að versla á hverju ári 55.000 tonn af þeirri framleiðslu.

// Varan

Rafeldsneyti til flugs (electro-Sustainable Aviation Fuel)

eSAF er samsett þotueldsneyti framleitt úr grænu vetni og fönguðu kolefni. Það blandast inn í hefðbundnar þotueldsneytisbirgðir og nýtist í núverandi flugvélum, án breytinga.

90% CO₂

Lægri vistferilslosun miðað við hefðbundið þotueldsneyti, staðfest árlega.

Nýtist beint

Blandast allt að 50% í hefðbundnar þotueldsneytisbirgðir. Engar breytingar þarf á flugvélum eða flugvöllum.

Vottað

Hannað til að uppfylla ASTM D7566.

Hreinni bruni

Snefilmagn arómatískra efna, nánast brennisteinslaust.

// Staðsetning

Forskot Íslands

Raforka Íslands er alfarið endurnýjanleg, sem er afrakstur jarðfræðilegra eiginleika landsins og ákvarðana fyrri kynslóða sem valdi að nýta hana til góðs. Fyrir rafeldsneytisframleiðslu þýðir það greitt aðgengi að stöðugri og hreinni orku, en það er aðeins einn þáttur í forskoti til orkuskipta sem fáir staðir á jörðinni geta státað sig af.

// Fólkið

Nefnt eftir Iðunni, norrænu gyðju endurnýjunar. Stofnað árið 2021 til að byggja upp vetnisframleiðslu á markaðsforsendum.