Vinnslan er þjóðhagslegt verkefni, en fyrst og fremst er það staðbundið. Tæplega helmingur allrar eldsneytissölu á Íslandi er á Suðurnesjum: þotueldsneytisþörf flugvallarins bætist við olíueftirspurn vegna flugvallartengdra flutninga á fólki og farmi, sem leggst svo ofan á talsverða eldsneytisþörf sjósóknar, sem ætti að gera þennan litla reit að lykilpunkti í áætlanagerð ríkisins um orkuskipti og orkusjálfstæði. Vinnslan verður staðsett í Græna iðngarði Kadeco í Suðurnesjabæ, með hafnaraðstöðu og faglega umgjörð utan um nauðsynlega þjónustu, og vinnslan mun deila því sem deila má: markmið verkefnisins er að beina umframhita inn í veitukerfi HS Veitna, og bæta þannig nýjum varmagjafa fyrir íbúa á svæðinu, og súrefnið sem myndast sem hliðarafurð rafgreiningar gæti nýst öðrum fyrirtækjum.
Sveitarfélögin eru þátttakendur, ekki áhorfendur. Samráðshópur verkefnisins var stofnaður 2022, með fulltrúum beggja sveitarfélaga, Kadeco, Icelandair, Icelandic Tank Storage og Isavia, og IðunnH2 hefur undirritað viljayfirlýsingar við Icelandic Tank Storage, Kadeco, Suðurnesjabæ, Reykjanesbæ og Icelandair. Störf í heimabyggð, innkaup í heimabyggð og iðnaður þar sem verðmætin verða eftir á Suðurnesjum.